Bloggar | 4.12.2007 | 19:42 (breytt kl. 19:42) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sitjum núna á yndislegu kaffihúsi í miðbæ Prag, hann er reyndar appelsínugulari en allt sem appelsínugult er og er mjög likelgt að ég muni ekki þekkja appelsínur Tesco búðinni næst þegar við förum að versla í matinn, verðum án efa ónæmar fyrir appelsínugulu! EEn Hér er frír internet aðgangur og ákáðum við því að nýta okkur það þar sem internetið heima er orðið súper-sljótt. Ekki nóg með að netið er að hrynja heima heldur er hitakerfið eitthvað í molum og jaðar við alkuli í stofunni okkar.
Hér fengum við okkur súkkulaðiköku með 3-földu súkkulaði-lagi, super-stóran súkkulaðibolla (stór á bandarískan mælikvarða meira að segja) svo fengum við súkkulaði nammi með súkkulaði kaffinu okkar. mmmmm súkkulaði...fengum okkur að borða, og já ótrúlegt maturinn var líka fínn! þó sósan sem ég fékk með kjúklingnum mínum hafi óneytanlega minnt á kekkjaðan hafragraut, hún var samt bragðgóð!
Enn stittist í heimkomu okkar og þá loksins þegar liðið er á seinni hálfleikinn að þá er komið að því að skólinn okkar skipuleggur dansiball, eða party. Verður forvitnilegt að sjá hvernig tékkar skipuleggja alvöru skólapartý! annars er lítið af frétta af okkur nema von er á að minnsta kosti 5 gestum í næstu viku og ætti nú ekki að vera amalegt. við erum sem betur fer komnar með heila 3 veitingastaði sem bera fram ætan mat og ætti það að covera flest öll kvöldin.
Svo er Rósa búin að bjóða okkur í skiptinema partý á morgun og mun það vera fyrsta alvöru partíið okkar hérna í Prag. sorglegt? ég veit ekki..... annars höfum við farið í skiptinema partý í ljubljana, og ef að öll skiptinema partý í Austur-miðevrópu eru í líkingu við þau, að þá get ég ekki sagt að við séum að missa af miklu fjöri hérna...
Bloggar | 16.11.2007 | 20:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eftir erfiða pönkaraviku skelltum við okkur til Belgrad....
á heimleið í hinni vinsælu 12 klst. lestarferð frá Slóveníu til Prag tókum við stöllur eftir því að bæði pönkið og túristamennskan hafði farið eitthvað skringilega í okkur, og þegar við litum í spegil var þetta útkoman..
..nú eins og flestir sjá að þá var sjónin sem blasti við fremur einkennileg og minnti óneytanlega á afbrigði af 80s klippingum, þannig við ákváðum á staðnum að fixa aðeins upp á þetta, þar sem við höfðum jú ágæta 11 klst. framundan af engu öðru en leggingu og leiðindum...
Árný Nanna var því klippt stutt......
og eemmm jaaá...
Með þessum myndum viljum við svo bara benda á að 12 klst. lestarferð getur tekið eilítið á taugarnar og hvort um er að ræða stundargeðveiki eða bara ágætis afþreyingu.........
Bloggar | 15.11.2007 | 17:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það var komið að því að við tækjum loks heila helgi í að læra enda hefur varla komið sú helgi að við séum ekkert að gera eða að dröslast eitthvað...við ákváðum þó í dag að fara aðeins og kaupa okkur hlaupaskó (örugglega aðallega bara til að hafa afsökun fyrir að gera eitthvað annað en að læra) þar sem kominn er tími á að fara að hreyfa allann þennann yndislega og góða mat hérna af sér...
förum í vagninn okkar, en í ljós kemur að hann hefur tekið upp á að kanna nýjar leiðir = fór einhverja bandvitlausa leið. Við sættum okkur bara við það að fara eitthvað annað en við ætluðum okkur. kaupum bara í matinn í stað þess að kaupa hlaupa skó
förum svo til baka..en á leiðinni er okkur hent úr vagninum (sem og öðrum sem í honum voru) og stöndum við því í miðri prag áttaviltar og svoldið móðgaðar..en glögg augu okkar, sem vanar eru myrkri og tölvuskjám sjá fljótt MEtro merki! bjargvætturinn var ekki langt undan og við komumst heilar heim..nema kannski svoldið ringlaðar á því að búið sé að breyta þessu yndislega trammakerfi!
Annað sem er að gerast hér: ALLT er að fyllast af PÖNKURUM!! hvað er að gerast? af hverju hafa allir pönkarar heimsins ákveðið að koma til minnar heimaborgar núna? hversu langan tíma tekur það að hafa sig til á morgnana þegar maður er pönkari? hvernig ná þeir að halda hárinu þráðbeint upp í loft? er pönkið ekki dautt? hvaða maður fann upp þessa tísku? eru allir karlkynspönkarar hommar, þar sem þeir ganga í sokkabuxum? eru þá karlkynsballettdansarar líka hommar? hvað er að gerast?
fyrir sirka 3 vikum síðan fylltist allt, já gjörsamlega ALLT af túristum! við gátum varla farið í búðina að kaupa í matinn án þess að troða að minnsta kosti 3 túrista niður á leiðinni! í dag er enn fullt af túristum nema núna hafa pönkara´túristar bæst í hópinn, sem þýðir að við erum ekki bara að troða "venjulegt" fólk niður...
..Við erum svo að fara frá öllum þessum elskulegu túristum og pönkurum í næstu viku til þess að fara til Slóveníju í 12 tíma lestarferð og þaðan í 9 klst rútuferð til Belgrad...
að öðru leiti erum við farnar að hlakka til að komast heim, enda fer krónum í veskinu okkar að fækka, sem boðar ekki gott...
..og svengdin í mat, eykst með hverjum deginum...
kv. sigga lóa
Bloggar | 3.11.2007 | 00:45 (breytt 4.11.2007 kl. 15:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Jæja það eru komnar inn nokkar nýjar myndir. Þær eru frá hella- og kastala- ferðinni okkar í Slóveníu. en þessar myndir eru á síðunni hjá Tryggva.....(tengiliður hér til hægri ;)..)
kv. siggló
Bloggar | 1.11.2007 | 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Neinei..við erum ekki með ear worms í beinni merkingu. En þar sem við erum nú í Ammerískum skóla hérna í miðri Evrópu að þá datt mér í hug að deila með ykkur smá Ammmeríksri menningu eða frösum eða heimspeki eða hvað þetta nú kallast...
Að ver með ear worms eða eyrnar orma þýðir sem sagt ekki að viðkomandi sé með orma í eyranu heldur þýðir það að viðkomandi hefur fengið lag eða frasa á heilann sem spilast aftur og aftur og aftur og aftur í huganum og viðkomandi getur ekkert gert til að losna við þetta lag. Lagið á það til að festast í huganum í langan tíma og þá yfirleitt heilan eða hálfan dag..stundum getur þetta ear worms ástand þó varað lengur en þá er um sérstakt ástand að ræða og er mælt með að slíkt fólk leiti sérstakrar meðferðar. því miður hef ég ekki í höndum mér hver þessi sérstaka meðferð er, en til að komast að því er án efa hægt að hringja í Bandaríska þingið og fá úr því greitt, enda efa ég ekki að það voru upprunalega þeir sem byrjuðu með þetta ear worms ástand...
nú ættu allir að vita hvað ear worsm er eða eyrnar ormar og því skal fólk ekki hræðast Ammeríkanana þegar þeir fara að tala um eyrnar orma sína....
kv. Sigga lóa
Bloggar | 31.10.2007 | 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
já við stöllur erum sem sagt búnar í vetrarfríinu okkar og þurfum víst að fara gera eitthvað af viti í þessum blessaða skóla sem við erum í.. æjji þar sem við erum ósýnilegar muniði, en því miður þá vita kennararnir okkar alltaf þegar við mætum ekki og gerum ekki heimavinnuna okkar.. dóó
Við ákvaðum að skella okkur til Slóveníju þar sem undirritaður er náttúrulega bara brjálæðislega ástfangin þessa daganna af þessu yndislega litla græna landi þá þarf eg ekkert að segja hvað mér fannst æðislegt að eyða nokkrum dögum þar..
Við fórum sem sagt og sóttum heim íslenskubifrastarslóveníjufarana Tryggva, Söndru og Stjána, þau voru búin að skrá okkur í túristaferð að skoða Skocjan hella og kastala þar í nágrenninu.. þetta var rosalega gaman þá sérstaklega hef ég gaman af því að skoða kastala þar sem ég fer alltaf að ímynda mér að ég sé prinsessa:) heheh Hellarnir voru náttúrulega alveg geggjaðir 18 km af lengd minnir mig og risastórir, þetta var svona eins og þetta hafi bara verið í ævintýralandi.. en þrátt fyrir mikla fegurð þá eru þessir túristastaðir út í heimi orðnir allt of mikið FAKE eitthvað.. við fórum með lest niður í hellinn, síðan löbbuðum við á malbikuðum stígum um hann allan.. æjji já mér var eiginlega bara farið að leiðast soldið í lokin.. híhí en áhugavert og gaman;) maður hugsaði bara um landmannalaugar eftir nokkur ár með spilavíti og risa hótel.. niiiiiiiiiiiiiiiiiii það virkar engan vegin..
Við kíktum nú eitthvað pínulítið út á lífið í Ljúblijana og var djammið þarna var nú eiginlega bara alveg eins og krakkarnir voru búnir að lýsa því, sveitt stemmning mjööööööög sveitt stemmning.. Fórum út á miðvikudagskvöldið og Föstudagskvöldið.. á miðvikudagskvöldið fórum við á mjög sveittan klúbb þar þurftum við líka aðeins að sýna okkar þjóðarstolt eða eitthvað.. það Var Króati sem var svo óheppinn að vera klæddur í stuttermabol merktum íslenska Brennivíninu, úff við náttúrulega réðumst á hann eins og snargeðveikt lið yfirheyrðum hann afhverju hann væri í bol merktum íslenska brennivíninu og gáfum honum íslenskt þjóðernisknúúússssss eða hvað Þetta var.. hahahahah greyið maðurinn á örugglega aldrei eftir að hætta sér í þennan blessaða bol aftur.. úppsí..
á Föstudagskvöldið ákvaðum við síðan að kíkja á skiptinema menninguna, við ákvaðum að skella okkur í skiptinemapartý upp á einni vistinni, héldum náttúrulega að við værum komin í fett vistarpartý.. já úff skiptinemapartýið var eitt það sveittasta og subbulegasta sem ég hef komið í.. já fólk ég er að tala um þetta var sveittara en ákveðin partý upp á Bifröstinni.. já you know what I´m talking about;) hehehe en þetta var nú samt alveg fínt, ég komst allaveganna af ýmislegum um sjálfan mig og lífið..
-Finnar eru alveg eins og íslendinga.. já þeir skilja kaldhæðni.. snilld
-Franskur strákur sagði að ég væri "arrogant and full of my self" hmm vegna þess að ég var ekki að hlusta á hann.. hann var líka bara ekkert skemmtilegur.. fyndið samt hef aldrei fengið svona fallegt komment áður..
-Einnig var ég spurð hvort ég væri ekki bara freðin.. hahah nobb ekki var ég það
-Tékkar eru króníst feimið fólk..
-það er skólakerfinu að kenna að Tékkar þora ekki að tala ensku, því að þeir fá enga kennslu í því í skólanum, bara málfræði og aftur málfræði.. já ég er með áreiðalegar heimildir var að tala við tékkneska stelpu á föstudaginn..
-það er svo fyndið að bulla í fólki sem skilur ekki kaldhæðni...
er allaveganna komin heim núna "home sweet home" verð ég nú að segja.. klikkað að gera í skólanum á næstunni og sonna skemmtilegheit.... partýið fer að enda.. búin með allan ferðapeningin og þarf að einbeita mér að skólanum.. bömmer..
Takk fyrir mig krakkar í slóveníu.. mega fjör..
kv panína
Bloggar | 29.10.2007 | 01:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
jæjja, magt búið að gerast í Prag síðust vikur..
- Tókum prófa viku 4 próf of 2 fyrirlestrar á 3 dögum, úff ég held að ég we ekki frá því að ég hafi fengið smá snert af Helvíti á jörðu niðri þessa einu viku..
- síðan enduðu loksins þessi próf og þá fengum við að slaka á því að vetrarfrííið okkar byrjaði.. ahh nice
-Sigríður Lóa átti afmæli á Föstudaginn 19. okt, dagurinn var tekinn í verslunarleiðangur og djamm..
-Til hamingju með ammælið siggalóa mín.. knúúússssssss aftur.. já btw hún er orðin hund gömul 22 ára:)
-já á föstudaginn fórum við út á skemmtistaðinn "Double Trouble" ekkert meira að segja frá því nema, við sigga erum annaðhvort ósýnilegar í þessum skóla okkar eða lítum út eins og ruslapokar í skólanum því að við hittum tvær stelpur sem eru með okkur í flestum tímunum og nei þær bara þekktu okkur ekki.. frekar vandræðalegt þar sem við heilsuðum þeim og önnur stelpan blaðraði bara eikkað á tékknesku og eikkað og síðan þegar hún fattaði hverjar við vorum þá sagði hún "Ohh I didn't regonize you, because you were make up tonight" hahaha já það er greinilegt að við erum alltaf svo myglaðar í skólanum að þegar við látum maskara á okkur þekkir fólk okkur ekki.. gaman að því..
-Tryggvi og Lilja vinkona Siggu komu og eyddu c.a. helgi í Prag, og vonandi höfðu gaman af..
-fundum góðan veitingarstað í Prag.. ótrúlegt en satt, meira að segja þjónustan var góð... klöppum fyrir því..
-Síðan erum við á leiðinni til Slóveníu í vetrarfríinu okkar, gaman af því, þar sem slóvenía er fáranlega fallegt land...
- en allveganna góða nótt lömbin mín..
kv panínana
Bloggar | 21.10.2007 | 23:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nú vill svo skemmtilega til að ég er að gera kynningu um það hvert hlutverk IMF sé í hagkerfi Argentínu og hvort að ný leið eða nálgun sé sé þörf fyrir lönd eins og Argentínu?
Þetta er mjög spennandi verkefni svo að ef að einhver þarna úti hefur eitthvað af lesefni eða greinum í fórum sér sem snertir þetta efni, þá endilega hafa samband.....:)
Bloggar | 10.10.2007 | 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Rachman leigusalinn okkar er fundinn. engar áhyuggjur við fengum loksins að borga leiguna okkar..fjúff...
Við erum búnar að finna markað sem ætti að hafa notuð hjól, ef ekki að þá er áreiðanlegt að á þessum markaði eru allavega notuð kaffistell..
Erum enn að vafrast með hvað við eigum að gera í þessu miðsvetrarfríi. En meðal þeirra möguleika sem eru í boði eru þessir:
1. Árný fer til Frakklands og Sigga til Slóveníu.
2. Sigga fer til Frakklands og Árný til Slóveníu.
3. Förum báðar til Slóveníu strax.
4. Förum til Austurríkis í nokkra daga, þaðan til Slóveníu og svo heim.
5. Skoðum Tékkland í nokkra daga og svo til Slóveníu.
6. Skoðum bara Tékkland.
7. Förum ekki neitt, og verðum bara heima að læra.
Ef aðrar uppástungur koma, endilega komið með þær.....
kv. Sigga Ló
Bloggar | 10.10.2007 | 19:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)


ragnarludvik
tryggvirafn







